Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari A kvenna, hefur þurft að gera eina breytingu á hóp liðsins fyrir leikina gegn Frakklandi og Lettlandi.
Sonný Lára Þráinsdóttir, markvörður Breiðabliks, getur ekki tekið þátt í leikjunum vegna meiðsla. Sonný meiddist gegn Fylki í lokaumferðinni í Pepsi Max-deildinni um síðustu helgi og var ekki með Breiðabliki í 1-0 sigrinum á Sparta Prag í gær.
Í hennar stað kemur Ingibjörg Valgeirsdóttir, markvörður KR, inn í hópinn. Ingibjörg er nýliði í landsliðinu.
Markverðir
Sandra Sigurðardóttir | Valur
Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Fylkir
Ingibjörg Valgeirsdóttir I KR
Varnarmenn:
Ásta Eir Árnadóttir | Breiðablik
Ingibjörg Sigurðardóttir | Djurgarden
Sif Atladóttir | Kristianstads DFF
Guðný Árnadóttir | Valur
Anna Björk Kristjánsdóttir | PSV
Glódís Perla Viggósdóttir | Rosengard
Hallbera Guðný Gísladóttir | Valur
Miðjumenn:
Dagný Brynjarsdóttir | Portland Thorn
Margrét Lára Viðarsdóttir | Valur
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Utah Royals
Sara Björk Gunnarsdóttir | Wolfsburg
Alexandra Jóhannsdóttir | Breiðablik
Rakel Hönnudóttir | Reading
Framherjar:
Hlín Eiríksdóttir | Valur
Agla María Albertsdóttir | Breiðablik
Berglind Björg Þorvaldsdóttir | Breiðablik
Elín Metta Jensen | Valur
Svava Rós Guðmundsdóttir | Kristianstads DFF
Fanndís Friðriksdóttir | Valur
Sandra María Jessen | Leverkusen
Athugasemdir