Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. september 2019 17:30
Elvar Geir Magnússon
Matuidi leysir af í vinstri bakverði
Ronaldo og Matuidi.
Ronaldo og Matuidi.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt fréttum frá Ítalíu mun Juventus nota Blaise Matuidi sem vinstri bakvörð gegn SPAL í ítölsku A-deildinni á morgun.

Það er vandræðagangur með þá stöðu hjá Juve þar sem Alex Sandro er í Brasilíu eftir að amma hans lést en þá eru Danilo og Mattia De Sciglio á meiðslalistanum.

Corriere della Sera segir að Maurizio Sarri muni nota Matuidi sem vinstri bakvörð.

Þessi 32 ára miðvörður er örvfættur og lék eitthvað sem vinstri bakvörður hjá St Etienne áður en hann gekk í raðir Paris Saint-Germain 2011.

Juventus hefur verið að nota Juan Cuadrado sem hægri bakvörð en hann er vængmaður að upplagi.
Athugasemdir
banner
banner
banner