Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 27. september 2019 21:15
Ívan Guðjón Baldursson
Sandra María spilaði í tapi - PSV skoraði níu
Mynd: Mirko Kappes
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen fékk síðustu mínúturnar er Bayer Leverkusen tapaði fyrir Sand í þýska boltanum í dag.

Leverkusen lenti undir í fyrri hálfleik en Ivana Rudelic jafnaði í upphafi síðari hálfleiks.

Myrthe Moorrees fékk rautt spjald í liði Sand en tíu leikmönnum gestanna tókst að pota inn sigurmarki á 73. mínútu.

Leverkusen er með sex stig eftir fimm umferðir. Sand er með sjö stig. Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í Wolfsburg eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Bayer Leverkusen 1 - 2 Sand
0-1 Nadine Prohaska ('25)
1-1 Ivana Rudelic ('47)
1-2 Dina Blagojevic ('73)
Rautt spjald: Myrthe Moorrees, Sand ('55)

Anna Björk Kristjánsdóttir byrjaði á bekknum er kvennalið PSV skoraði níu mörk gegn Excelsior í hollensku deildinni.

Joelle Smits og Kayleigh van Dooren skoruðu þrennu hvor og er PSV á toppi deildarinnar með þriggja stiga forystu á Ajax eftir fimm umferðir.

PSV 9 - 1 Excelsior/Barendrecht
1-0 K. Snoeijs ('12)
2-0 J. Smits ('34)
3-0 J. Smits ('44)
4-0 J. Kuijpers ('48)
5-0 J. Biesmans ('52)
6-0 K. van Dooren ('57, víti)
7-0 K. van Dooren ('64)
8-0 J. Smits ('67)
9-0 K. van Dooren ('88)
9-1 F. Nieuwland ('89)

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék þá allan leikinn er Utah Royals tapaði fyrir Seattle Reign í bandaríska kvennaboltanum á dögunum.

Liðin eru í mikilli baráttu um fjórða sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í umspilinu. Eftir tapið er Utah í fimmta sæti, þremur stigum eftir Seattle.

Þetta var þriðji tapleikur Utah í röð. Ljóst er að Gunnhildur og stöllur þurfa að snúa genginu við hið snarasta til að eiga möguleika á umspilssæti á lokakafla tímabilsins.

Seattle Reign 2 - 1 Utah Royals
1-0 B. balcer ('40)
1-1 K. Stengel ('67)
2-1 J. Taylor ('86)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner