Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. september 2019 10:34
Elvar Geir Magnússon
Stefnt á að Alisson byrji æfingar að fullu á sunnudag
Alisson er að snúa aftur.
Alisson er að snúa aftur.
Mynd: Getty Images
Stefnt er að því að markvörðurinn Alisson fari að æfa af fullum krafti með Liverpool frá og með sunnudeginum. Hann hefur verið að glíma við meiðsli.

„Alisson og Sadio Mane æfðu báðir í gær. Sadio er alveg heill, engin vandamál. Ali er á góðri leið. Hann er að færast nær og nær. Hann verður ekki með á morgun en getur æft með liðinu frá og með sunnudeginum. Hann er mjög nálægt," segir Jurgen Klopp.

Liverpool heimsækir Sheffield United á morgun.

„Xherdan Shaqiri er ekki klár. Hann er í endurhæfingu."

Klopp sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og hann var meðal annar spurður út í starf Chris Wilder, stjóra Sheffield United.

„Hann er að gera ótrúlega hluti. Ég hlakka tl að hitta hann. Ég hef aldrei hitt hann áður. Liðið hans er mjög spennandi og það er mjög áhugaverð taktík þegar miðverðirnir fara í framhjáhlaup," segir Klopp.


Athugasemdir
banner
banner
banner