Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fös 27. september 2019 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Úrvalsdeildarleikmaður flúði út um glugga á nærbuxunum
Gary Lineker kemur ekki til greina.
Gary Lineker kemur ekki til greina.
Mynd: Twitter
'Þekktur' úrvalsdeildarleikmaður flúði út um glugga á hótelherbergi á nærbuxunum einum klæða eftir að hafa verið gripinn í miðju framhjáhaldi. Frá þessu greina enskir fjölmiðlar, þar á meðal Sky.

Leikmaðurinn fór niður brunastiga og inn á næsta veitingastað þar sem starfsfólk kannaðist við hann og lánaði föt meðan hann hringdi á lögreglu.

Hann var að hitta 28 ára konu sem heitir Natalie Wood en það voru vinir hennar sem ruddust inn á hótelherbergið vopnaðir myndavélum meðan þau voru í miðjum klíðum.

Leikmaðurinn er búinn að kæra Natalie og vini hennar sem stóðu að málinu fyrir fjárkúgun. Einn þeirra er Tyrone Coleman, sem er þekktur á Englandi fyrir að taka þátt í stefnumótaþáttunum Take Me Out. Eldri bróðir hans, Nathan Coleman, er einnig kærður sem og maður að nafni Prince Rowe.

Málið er fyrir dómi um þessar mundir og má ekki nafngreina leikmanninn af lagalegum ástæðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner