Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 27. september 2020 21:08
Aksentije Milisic
Pepsi Max-deildin: Tvö rauð í jafntefli Vals og Breiðabliks - Stjarnan vann HK
Birkir heldur áfram að skora.
Birkir heldur áfram að skora.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hilmar tryggði Stjörnunni sigur.
Hilmar tryggði Stjörnunni sigur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveimur leikjum var að ljúka í Pepsi Max deildinni nú í kvöld.

Á Origo vellinum mættust Valur og Breiðablik. Markalaust var í hálfleik en eftir klukkutíma leik dró til tíðinda en þá fékk Davíð Ingvarsson beint rautt spjald eftir grófa tæklingu. Hann fór þá í hörku tæklingu á Hauk Pál Sigurðssyni með sólann á lofti.

Blikar voru þó ekki lengi einum leikmanni færri því þremur mínútum síðar fékk Valgeir Lunddal Friðriksson sitt annað gula spjald fyrir brot á Brynjólfi Willumssyni.

Það var á 77. mínútu sem Róbert Orri Þorkelsson skoraði eftir góðan undirbúning frá Höskuldi Gunnlaugssyni. Þetta var fyrsta mark Róberts fyrir Breiðablik.

Valur gafst ekki upp og það var Birkir Már Sævarsson sem skoraði í þriðja leiknum í röð. Birkir Heimisson átti þá flotta sendingu á fjær og kláraði nafni hans færið mjög vel.

Jafntefli niðurstaðan á Origo vellinum í þessum mjög fjöruga leik.

Í Kórnum mættust HK og Stjarnan og úr varð fjörugur leikur. Stjarnan komst yfir á 40. mínútu en þá skoraði Jósef Kristinn Jósefsson. „Stjörnumenn komnir yfir!
HIlmar Árni með frábæra fyrirgjöf sem finnur Jósef og Stjörnumenn komnir yfir!"
skrifaði Stefán Marteinn Ólafsson í textalýsingunni.

Einungis mínútu síðar tvöfaldaði Guðjón Pétur Lýðsson forystuna fyrir gestina og staðan 2-0 þegar flautar var til hálfleiks. Heimamenn gáfust ekki upp og minnkaði Hörður Árnason muninn á 51. mínútu eftir hornspyrnu frá Ásgeiri Marteinssyni.

HK var ekki hætt og jafnaði Guðmundur Þór Júlíusson metin á 72. mínútu. Það voru hins vegar Stjörnumenn sem náðu inn sigurmarkinu. Hilmar Árni Halldórsson skoraði þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Góður sigur hjá Stjörnunni staðreynd.

Valur 1 - 1 Breiðablik
0-1 Róbert Orri Þorkelsson ('76 )
1-1 Birkir Már Sævarsson ('90 )

Rautt spjald: ,Davíð Ingvarsson , Breiðablik ('60)Valgeir Lunddal Friðriksson, Valur ('63)

HK 2-3 Stjarnan
0-1 Jósef Kristinn Jósefsson ('40)
0-2 Guðjón Pétur Lýðsson ('41)
1-2 Hörður Árnason ('51)
2-2 Guðmundur Þór Júlíusson ('72)
2-3 Hilmar Árni Halldórsson ('86)
Athugasemdir
banner
banner
banner