Fotbolti.net
27.09.22 - 21:43
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu jöfnunarmarkið gegn Albönum: Geggjuð sending Þóris

Þórir átti sendinguna á Mikael

Þórir átti sendinguna á Mikael

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Neville Anderson skoraði jöfnunarmark Íslands í 1-1 jafnteflinu gegn Albaníu í B-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld en það kom seint í uppbótartíma.
Eftir hetjulega baráttu kom konfektsending frá Þóri Jóhanni Helgasyni inn í teiginn sem skoppaði á fjærstöngina á Mikael sem kom honum í netið.

Þórir notaði skemmtilega tækni við sendinguna, sem var eflaust ætluð Mikael Agli Ellertssyni, en boltinn skoppaði í gegnum hann og á nafna hans, Mikael Neville og var ljúft að sjá boltann í netinu.

Hægt er að sjá sendinguna og markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.