Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 27. október 2021 14:00
Elvar Geir Magnússon
Kepa mun leysa Mendy af: Ég verð tilbúinn
Kepa Arrizabalaga.
Kepa Arrizabalaga.
Mynd: Getty Images
Kepa Arrizabalaga segist verða klár í janúar þegar hann þarf að leysa Edouard Mendy af í marki Chelsea þegar sá síðarnefndi verður með Senegal í Afríkukeppninni.

Kepa var í rammanum hjá Chelsea í gær þegar liðið vann sigur gegn Southampton í deildabikarnum í vítaspyrnukeppni.

Spánverjinn hefur ekki náð að vera nægilega sannfærandi síðan hann var keyptur til Chelsea frá Athletic Bilbao fyrir 71,6 milljónir punda fyrir þremur árum.

„Þetta er tveimur mánuðum frá. Auðvitað gerum við okkur grein fyrir því hvað getur gerst og ég verð tilbúinn. En það eru margir leikir í þetta. Ef hann fer í Afríkukeppnina þá er það bara gott mál og ég verð klár," segir Kepa.

„Auðvtað vil ég spila fleiri leiki. Síðasti leikur á undan þessum var bikarleikur fyrir um mánuði. Það er ekki auðvelt að stíga inn og hafa sömu tilfinningu og þegar þú spilar í hverri viku. En ég reyni að vera klár, æfa vel og vera hluti af hópnum."

„Ég finn að ég hef traust stjórans og það er mjög mikilvægt. Ég hef fundið fyrir stuðningi frá upphafi og þegar ég stíg inn verð ég tilbúinn að hjálpa liðinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner