Declan Rice, fyrirliði West Ham, er handviss um að Arsenal verði enskur meistari í vor.
West Ham tapaði fyrir Arsenal á Emirates-leikvanginum í gær, 3-1, en Arsenal var marki undir í hálfleik.
En það var meistarabragur á Arsenal sem kom til baka og skoraði þrjú mörk í síðari hálfleiknum og gekk frá leiknum.
„Þessi var erfiður. Við vorum ekki mikið með boltann í fyrri hálfleik en við stöðvuðum þá og vorum með plan. Þetta er eins og Manchester City, á endanum mun eitt af færunum þeirra skapa eitthvað. Þeir kæfðu okkur út um allan völl,“ sagði Rice.
Rice var spurður hvort Arsenal myndi vinna ensku úrvalsdeildina þetta tímabilið og svaraði hann því játandi.
„Það er 100 prósent. Þetta er topplið og þú sérð að þeir eru ótrúlega vel þjálfaðir. Þeir eru með ungan hóp og með hæfileikaríka sóknarmenn og geta farið alla leið. Það er klárt.“
Er West Ham komið í fallbaráttu?
„Nei, það held ég ekki. Öll lið fara í gegnum svona kafla en það er undir mér komið sem fyrirliða að halda öllum við efnið og halda áfram að gefa hundrað prósent á vellinum eins og allir aðrir til að ná í úrslitin. Það eru svo margir leikir eftir og við teljum okkur enn vera topplið. Við þurfum að hætta að tala um það og sýna það,“ sagði hann í lokin.
Athugasemdir




