Ítalía í dag - Skyldusigrar fyrir Inter og Atalanta


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Það fara þrír leikir fram í ítalska boltanum í dag þar sem Empoli tekur á móti Torino í fyrsta leik dagsins áður en botnlið Cremonese tekur á móti Inter.
Empoli og Torino eru bæði um miðja deild, örfáum stigum frá sjöunda sætinu sem veitir þátttökurétt í Sambandsdeildinni. Það má því búast við hörkurimmu þar.
Cremonese er níu stigum frá öruggu sæti en þrautin verður þung gegn Inter sem þarf sigur í toppbaráttunni.
Að lokum á Atalanta heimaleik gegn fallbaráttuliði Sampdoria. Það verður gífurlega erfitt fyrir Samp sem er í næstneðsta sæti, átta stigum frá öruggu sæti. Atalanta er rétt á eftir Inter í toppbaráttunni.
Stöð 2 Sport 2 er með sýningarrétt á ítalska boltanum.
Ítalía: Sería A
14:00 Empoli - Torino
17:00 Cremonese - Inter
19:45 Atalanta - Sampdoria
