Odion Ighalo, leikmaður Manchester United, opnaði markareikning sinn fyrir félagið er hann skoraði í sigrinum á Club Brugge í Evrópudeildinni í gær.
Ighalo skoraði þá eftir flotta sókn en Juan Mata átti fyrirgjöf á Ighalo sem átti ekki í vandræðum með að renna knettinum í netið.
Ighalo skoraði þá eftir flotta sókn en Juan Mata átti fyrirgjöf á Ighalo sem átti ekki í vandræðum með að renna knettinum í netið.
Systir Ighalo, Mary Atole, lést í desember síðastliðnum og var Ighalo búinn að segja að hann myndi tileinka henni öll mörk sín sem hann skorar fyrir Manchester United.
Þegar Ighalo skoraði í gær þá fagnaði hann með því að sýna bol þar sem mynd var af systur hans eins og má sjá hér að neðan.
Odion Ighalo dedicated his first Manchester United goal to his sister, who died in December.
— ESPN FC (@ESPNFC) February 27, 2020
(via @btsportfootball) pic.twitter.com/njQjyibe1j
Odion Ighalo dedicated his first ever Manchester United goal to his late sister Mary Atole ❤️ pic.twitter.com/I9YgTAeHAY
— utdreport (@utdreport) February 27, 2020
Athugasemdir