Fotbolti.net
28.02.20 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Pulisic, Kante og Abraham á meiðslalistanum

Tammy Abraham.

Tammy Abraham.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en liðið er sem stendur í fjórða sætinu. Liðið mætir Bournemouth á morgun.

Frank Lampard, stjóri Chelsea, fór yfir meiðslastöðuna á fréttamannafundi í dag.
„Christian Pulisic, N'Golo Kante og Tammy Abraham eru allir meiddir. Við erum að leita lausna með Tammy. Það er alltaf sama með hann," segir Lampard.

„Ég veit ekki hversu lengi Tammy Abraham verður frá. Ég spjalla við læknana á hverjum degi en þeir eru ekki alveg vissir um þessi meiðsli."

„Ruben Loftus-Cheek er í hópnum aftur á morgun. Það hefur mikla þýðingu fyrir hann. Hann hefur mikla hæfileika og er einn mest spennandi enski miðjumaðurinn í dag."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.