Fotbolti.net
28.02.21 - 18:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Sheffield og Liverpool: Adrian í markinu

Adrian er í markinu

Adrian er í markinu

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 19:15 hefst lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni, Liverpool mætir í heimsókn á Brammal Lane í Sheffield.

Liverpool hefur átt afleitur gengi að fagna að undanförnu og fær tækifæri til að laga það gegn botnliði deildarinnar. Lærisveinar Jurgen Klopp hafa tapað síðustu fjórum deildarleikjum á meðan Sheffield hefur náð í sex stig í síðustu fimm leikjum sínum.

Chris Wilder, stjóri Sheffield, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Fulham. McGoldrick kemur inn og ber fyrirliðabandið og þá kemur Oli Norwood inn á miðjuna.

Jurgen Klopp gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Everton. Alisson er ekki í hópnum í kvöld þar sem faðir hans lést á dögunum og þá meiddist Jordan Henderson í síðasta leik. Inn koma Adrian og Nathan Phillips.
Byrjunarlið Sheffield United: Ramsdale, Jagielka, Stevens, Baldock, Bryan, Ampadu, Fleck, Norwood, Lundstram, McGoldrick og McBurnie.

(Varamenn: Sharp, Foderingham, Brewster, Ndiaye, Lowe, Maguire, Mousset, Osborn, Burke)

Byrjunarlið Liverpool: Adrian, Robertson, Trent, Kabak, Wijnaldum, Phillips, Thiago, Jones, Firmino, Salah, Mane.

(Varamenn: Ojrzynsi, Hughes, Milner, Keita, Ox, Shaqiri, Origi, Williams, Williams)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.