Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
banner
   fös 28. mars 2014 23:52
Elvar Geir Magnússon
Óli Hrannar: Náðum að skeina okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir vann 3-2 sigur á Fjölni í Lengjubikarnum í kvöld eftir að Grafarvogsliðið var tveimur mörkum yfir í hálfleik.

„Seinni hálfleikurinn var mjög góður en við erum aftur á móti mjög ósáttir með fyrri hálfleikinn," sagði Ólafur Hrannar Kristjánsson, sóknarmaður og fyrirliði Leiknis.

„Við viljum ekki þurfa að fá á okkur eitt til tvö mörk til að byrja leikina. En seinni hálfleikurinn var mjög góður og við náðum að skeina okkur."

„Við höfum verið með varnarmenn í meiðslum en erum að endurheimta þá."

Ólafur skoraði annað mark Leiknis í leiknum en hann lék frammi með nýjum Bandaríkjamanni sem Leiknir hefur fengið, Matt Horth.

„Þetta er stór og sterkur strákur. Ég held að hann muni nýtast okkur mjög vel."

Hvernig lýst Ólafi á sumarið framundan í 1. deildinni?

„Ef við spilum rétt úr þessu sem liðið hefur upp á að bjóða þá tel ég að við getum náð langt. Við vorum um miðja deild í fyrra en viljum gera betur í ár. Markmiðið okkar er að ná að taka þátt í toppbaráttunni og við ætlum okkur einn daginn að fara upp um deild. Það kemur að því," sagði Ólafur en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner
banner