Þjálfari Shakhtar: Flóknara að fara út í búð en að spila við City
Mynd:
Getty Images
Portúgalinn Luis Castro, þjálfari Shakhtar Donetsk, er í einangrun í Úkraínu og birti færslu á Instagram þar sem hann velti veirunni fyrir sér sem og hegðun og framtíð mannkynsins.
„Líf okkar hafa öll breyst og mörg okkar spyrja sig hvers vegna. Er plánetan að reyna að koma á jafnvægi? Er þetta útaf kærulausri hegðun mannkynsins? Af hverju vorum við ekki tilbúin? Það eru margar spurningar," skrifaði Castro meðal annars í færslunni.
„Það er eitt sem ég veit um plánetuna okkar. Jörðin tilheyrir ekki bara okkur og það er ekki bara maðurinn sem getur breytt hlutum. Það eru til litlar örverur sem geta drepið hvaða heimsleiðtoga sem er."
Castro skrifaði einnig pistil fyrir portúgalska fjölmiðilinn Tribuna Expresso þar sem hann velti bæði efnahagslegum og andlegum áhrifum veirunnar fyrir sér auk þess að dásama heilbrigðisstarfsfólk um allan heim.
Í pistlinum sagði hann búðarferð í miðjum heimsfaraldri vera orðna flóknari heldur en Meistaradeildarleikur gegn Englandsmeisturum Manchester City.
„Ég veit ekki hvenær allt verður eðlilegt aftur. Fyrir tíu dögum var ég að hugsa um útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en í dag er ég að hugsa um grímuna og sótthreinsiefnið. Ég þarf að passa mig að þvo hendur og að heilsa ekki vinum mínum.
„Ferðalag í matvörubúðina er orðið flóknara heldur en fótboltaleikur gegn Man City eða Atalanta. Hvernig er þetta mögulegt? Hvað kom fyrir okkur? Af hverju?"