Nettómót Keflavíkur fyrir stelpur í 7. flokk verður haldið aftur í sumar. Þetta verður fjórða árið í röð sem mótið er haldið við góðar undirtektir.
Mótið stendur aðeins yfir í einn dag, laugardaginn 10. júní, þar sem hvert skráð lið fær að spila um 7 leiki.
Mikið er lagt upp úr leikgleði og vinskap þar sem keppendur snæða saman hádegismat og fara í bíó á milli leikja.
Að móti loknu er svo pizzaveisla, verðlaunaafhending og lokahóf með söngkonunni Siggu Ózk.
Þátttökugjald er 8,900kr. og er ýmislegt innifalið, meðal annars allt hér ofangreint, ávextir og hoppukastalar.




