Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 28. júní 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brasilískur fjölmiðill hlær að óförum Þýskalands
Mynd: Getty Images
Eins og flestir vita þá féllu ríkjandi Heimsmeistarar Þýskalands úr leik á HM í fótbolta í gær. Liðið tapaði 2-0 fyrir Suður-Kóreu í lokaleik sínum í riðlakeppninni.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu Þýskalands þar sem þeir falla úr leik í riðlakeppninni.

Brasilíska útgáfa Fox Sports hafði mjög gaman að því að sjá Þjóðverja falla úr leik en ljóst er að Brasilíumenn eru ekki búnir að gleyma 7-2 tapinu gegn Þýskalandi í undanúrslitunum á HM 2014.

Brasilía komst áfram í 16-liða úrslitin í gær.

Hér að neðan má sjá færslu Fox Sports í Brasilíu en hún hefur fengið mikla athygli. Englendingar eru einnig ánægðir með það að Þýskaland sé á leiðinni heim eftir riðlakeppnina.





Athugasemdir
banner
banner
banner