England mætir Belgíu klukkan 18:00 í kvöld í lokaleik liðanna í G-riðli.
Bæði lið eru stútfull af leikmönnum sem spila í ensku úrvalsdeildinni en alls spila 35 af 46 leikmönnum úr báðum liðum í efstu deild Englands.
Eric Dier vonast til þess að Vertonghen mistakist að stoppa Kane og segir að sigurvegari kvöldsins muni ekki láta hina í liðinu gleyma því.
„Það voru blendnar tilfinningar þegar við drógumst gegn Belgíu vegna þess að enginn af okkur mun vilja tapa þar sem það yrði martröð á næsta tímabili," sagði Dier.
„Ég get ekki hugsað um neitt verra en að Jan sigri England vegna þess að hann mun aldrei hætta að tala um það. Í hreinskilni munum við gera það sama ef við sigrum þá."
🗣️ "Neither of us want to lose."
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) June 28, 2018
🏴 @ericdier on the importance of winning tonight's Group G decider.#WorldCup pic.twitter.com/mcKOFrhMs5
Athugasemdir