Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 28. júní 2020 17:15
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Samherjar skoruðu sex - Tveir Thomasar fengu rautt
Mynd: Magnús Valur Böðvarsson
Samherjar 6 - 2 KM
1-0 Hreggviður Heiðberg Gunnarsson ('28)
2-0 Eysteinn Bessi Sigmarsson ('35)
3-0 Hreggviður Heiðberg Gunnarsson ('38)
4-0 Eysteinn Bessi Sigmarsson ('45)
5-0 Ágúst Örn Víðisson ('52)
5-1 Hlynur Þorsteinsson ('53)
6-1 Ingvar Gylfason ('71)
6-2 Hlynur Þorsteinsson ('75, víti)
Rautt spjald: Thomas Donald Kennedy, KM ('57)
Rautt spjald: Thomas Andrew Whitehead, KM ('90)

Samherjar og Knattspyrnufélagið Miðbær áttust við í afar fjörugum leik í C-riðli fjórðu deildar karla.

Heimamenn komust í 5-0 eftir 52 mínútur. Hreggviður Heiðberg Gunnarsson og Eysteinn Bessi Sigmarsson skoruðu tvennu hvor. Ágúst Örn Víðisson gerði fimmta markið og mínútu síðar var Hlynur Þorsteinsson búinn að minnka muninn.

Skömmu eftir það fékk Thomas Donald Kennedy, leikmaður KM, rautt spjald.

Ingvar Gylfason gerði sjötta mark Samherja og minnkaði Hlynur muninn aftur niður í fjögur mörk þegar hann steig á vítapunktinn á 75. mínútu.

Átökin voru þó ekki búin því Thomas Andrew Whitehead, hinn Thomasinn í liði KM, fékk beint rautt spjald á 90. mínútu.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner