Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. júní 2020 18:18
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Leicester og Chelsea: Maður leiksins kom af bekknum
Mynd: Getty Images
Chelsea er komið áfram í undanúrslit enska bikarsins eftir góðan sigur á Leicester City í dag. Þetta er annar sigur Chelsea í stórleik á fjórum dögum eftir 2-1 sigur gegn Manchester City á fimmtudaginn.

Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir og voru varamenn Chelsea, þeir Mateo Kovacic og Ross Barkley, einkunnahæstir.

Kovacic og Barkley komu inn í hálfleik og skoraði Barkley eina mark leiksins á 63. mínútu, eftir laglega fyrirgjöf frá Willian.

Þeir fengu báðir 8 í einkunn og var aðeins Christian Pulisic sem fékk sömu einkunn og þeir.

Auk Chelsea má finna Arsenal og Manchester United í undanúrslitum enska bikarsins. Manchester City mun líklega bætast við í kvöld, enda er liðið 0-1 yfir gegn Newcastle þessa stundina.

Leicester:Schmeichel (7), Justin (6), Evans (7), Soyuncu (7), Chilwell (6), Ndidi (7), Praet (6), Tielemans (7), Perez (6), Barnes (7), Vardy (6).
Varamenn: Albrighton (6), Choudhury (6), Gray (5).

Chelsea: Caballero (6), James (6), Rudiger (7), Zouma (7), Emerson (6), Kante (6), Gilmour (6), Willian (7), Mount (7), Pulisic (8), Abraham (7).
Varamenn: Barkley (8), Kovacic (8), Azpilicueta (7), Loftus-Cheek (6), Pedro (6).
Athugasemdir
banner
banner