Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. júní 2020 19:08
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Man Utd mætir Chelsea
Mynd: Getty Images
Búið er að draga í undanúrslit enska bikarsins og eru tveir stórleikir framundan.

Manchester United mætir Chelsea annars vegar og hins vegar á Arsenal leik við sigurvegarann úr viðureign Newcastle United og Manchester City sem er í gangi þessa stundina.

Man City er með tveggja marka forystu þegar tíu mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma og því líklegt að lærisveinar Pep Guardiola muni mæta Mikel Arteta og félögum enn eina ferðina.

Undanúrslit enska bikarsins:
Manchester United - Chelsea
Arsenal - Newcastle/Manchester City
Athugasemdir
banner
banner