Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 28. júní 2020 22:05
Magnús Már Einarsson
KR búið að taka á máli Guðjóns Orra innanhúss
Guðjón Orri Sigurjónsson.
Guðjón Orri Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Orri Sigurjónsson, varamarkvörður KR, sendi frá sér yfirlýsingu á samfélgasmiðlum á föstudagskvöld þar sem hann baðst afsökunar á ummælum sínum um fjárhag KR. Ekki kom þó fram um hvaða ummæli var að ræða.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir að búið sé að taka á málinu hjá félaginu.

„Það er bara búið að taka á því máli innanhúss og það er ekkert vesen," sagði Rúnar við Fótbolta.net í kvöld.

„ Gaui hefur staðið sig frábærlega hjá okkur og mun vonandi gera það áfram. Við erum ánægðir með hann."

„Menn gera stundum smá mistök en þetta var ekkert stórvægilegt. Við erum búnir að leysa þetta innanhúss."


Sjá einnig:
Guðjón Orri biðst afsökunar á ummælum um fjárhag KR
Athugasemdir
banner
banner
banner