„Þetta var ekki spurning í þreytu, við fengum á okkur þetta sorglega mark á 80. mínútu og þá held ég að trúin og einbeitingin hafi farið," sagði Vignir Snær Stefánsson fyrirliði Víkings Ólafsvík eftir 0-4 tap gegn Keflavík í lengjudeildinni í dag.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 0 - 4 Keflavík
„Þá fer þreytan að skila sínu en ef við hefðum náð inn jöfnunarmarki í staðinn þá hefði þetta breyst á hinn vegin og við náð meiri orku og náð að sigla þessu í lokin."
Keflavík skoraði fyrsta markið í upphafi seinni hálfleiks með vítaspyrnu. Vignir var ekki sáttur við þann dóm.
„Ég á að hafa brotið á manninum en mér fannst ég hafa náð boltanum á undan honum. Dómarinn metur það öðruvísi. Það var sýnilegt í dag að allar tæklingar og allt sem var farið í á fullu var strax flautað á. Ég var ósáttur við það í leiknum. Glórulaust fyrir mér en svona er þetta stundum."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir