Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. júlí 2020 22:48
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: KV fór létt með Elliða
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
KV 5 - 1 Elliði
1-0 Ingólfur Sigurðsson ('22)
2-0 Gauti Þorvarðarson ('32)
3-0 Agnar Þorláksson ('36)
4-0 Björn Axel Guðjónsson ('48)
4-1 Benedikt Daríus Garðarsson ('73)
5-1 Gauti Þorvarðarson ('90)
Rautt spjald: Jón Helgi Sigurðsson, KV ('87)

KV fékk Elliða í heimsókn í eina leik kvöldsins í 3. deildinni og lentu heimamenn ekki í vandræðum gegn Árbæingum.

Ingólfur Sigurðsson, Gauti Þorvarðarson og Agnar Þorláksson skoruðu allir í fyrri hálfleik og var staðan 3-0 í leikhlé.

Björn Axel Guðjónsson gerði fjórða mark KV í upphafi síðari hálfleiks og minnkuðu gestirnir muninn á 73. mínútu.

Undir lokin fékk Jón Helgi Sigurðsson beint rautt spjald í liði KV og gerði Gauti síðasta mark leiksins skömmu síðar.

KV er í öðru sæti 3. deildar eftir sigurinn, tveimur stigum eftir Reyni Sandgerði. KV er með 18 stig eftir 8 umferðir á meðan Elliði er meðal neðstu liða, með 8 stig.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner