þri 28. júlí 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Bayern Munchen vill fá Max Aarons
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen vill fá hægri bakvörðinn Max Aarons í sínar raðir frá Norwich.

Bayern er tilbúið að greiða 18,3 milljónir punda fyrir Aarons að sögn Sky í Þýskalandi.

Hinn tvítugi Aarons vakti athygli þegar Norwich féll úr ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.

Ljóst þykir að Aarons verði seldur í sumar en Bayer Leverkusen hefur einnig áhuga.

Bayern Munchen vill fá ungan leikmann til að berjast um stöðu við franska landsliðsbakvörðinn Benjamin Pavard.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner