Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 28. júlí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hearts tapaði máli sínu - Fara niður
Herts spilar í næst efstu deild Skotlands á næstu leiktíð.
Herts spilar í næst efstu deild Skotlands á næstu leiktíð.
Mynd: Getty Images
Keppni var aflýst í skosku úrvalsdeildinni vegna kórónuveirufaraldursins og tímabilið ekki klárað. Hearts var í fallsæti, fjórum stigum frá öruggu sæti, þegar átta umferðir voru eftir af tímabilinu. Hearts var dæmt niður um deild.

Mikið ósætti var hjá Hearts með þessa niðurstöðu og fór félagið með málið fyrir dóm.

Niðurstaðan úr dómsal er hins vegar sú sama og hjá skoska knattspyrnusambandinu. Henni verður ekki breytt og leikur því Hearts í B-deild á næsta tímabili.

Dundee United mun taka sæti Hearts í skosku úrvalsdeildinni fyrir næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner