Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. júlí 2020 18:23
Ívan Guðjón Baldursson
Hólmfríður Magnúsdóttir kinnbeinsbrotin - Frá næstu vikurnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Selfoss er í Vestmannaeyjum að keppa við ÍBV í suðurlandsslag í Pepsi Max-deild kvenna en Hólmfríður Magnúsdóttir er ekki í leikmannahópi Selfyssinga.

Hún er ekki með vegna meiðsla sem hún hlaut á æfingu á sunnudag, þar sem hún kinnbeinsbrotnaði eftir samstuð.

Selfoss er að gera fína hluti á upphafi tímabils og er með tíu stig eftir sex umferðir. Liðið er 0-1 yfir gegn ÍBV eftir tuttugu mínútna leik.

Selfoss hefur styrkt liðið sitt gríðarlega mikið undanfarin keppnistímabil og má finna hágæðaleikmenn á borð við Dagnýju Brynjarsdóttur og Önnu Björk Kristjánsdóttur í liðinu.

Selfyssingar eru ríkjandi bikarmeistarar og stefna á að stríða toppliðum Breiðabliks og Vals á tímabilinu. Selfoss tapaði fyrstu tveimur leikjum tímabilsins gegn Fylki og Blikum en hefur síðan þá unnið þrjá og gert jafntefli við Þrótt R.
Athugasemdir
banner
banner
banner