Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 28. júlí 2020 22:02
Hilmar Jökull Stefánsson
Kristján Guðmunds: Rokk og ról
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan gerði 5-5 jafntefli á heimavelli gegn Þrótti en Kristján Guðmunds var bara hörku bjartsýnn eftir leik.

„Þessi leikur var ekkert annað en rokk og ról en okkar rokk var kannski ekki nógu gott í fyrri hálfleik. Svo náðum við bara að dansa ansi vel í seinni, vorum töffarar og komum til baka í þessum leik.“


Lestu um leikinn: Stjarnan 5 -  5 Þróttur R.

Stjarnan var í viku fríi en liðið virkaði í flottu standi í leiknum og kom vel skipulagt til leiks í síðari hálfleik.

„Við erum allavega í hörkustandi, það sér sérhver maður. Ég veit ekki með andstæðinginn en fyrst og fremst erum við mjög ánægð með hvernig okkar leikmenn líta út, ekki spurning.“

Kristján var ánægður með að koma til baka í leiknum og sagðist ætla að taka það út úr honum hvernig þær komu til baka.

„Þegar við förum að skoða leikinn aftur, að vinna okkur til baka aftur og jafnvel eiga möguleika á að vinna hann. Við erum farnar að spila eins og við viljum spila, rokk og ról eins og þú sást í dag.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner