Neil Warnock verður áfram stjóri Middlesbrough á næsta tímabili í Championship deildinni.
Hinn 71 árs gamli Warnock hafði íhugað að hætta afskiptum af fótbolta eftir að hann hætti hjá Cardiff í fyrra.
Í síðasta mánuði sneri Warnock aftur í boltann þegar hann tók við Middlesbrough af Jonathan Woodgate.
Middlesbrough var á þeim tíma í fallsæti en Warnock reif liðið upp í 17.sætið.
Mikil ánægja var með störf Warnock hjá Middlesbrough og hann mun nú stýra liðinu áfram á næsta tímabili.
Athugasemdir