Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 28. júlí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tanganga framlengir við Tottenham til 2025
Tanganga eltir Sadio Mane, leikmann Liverpool.
Tanganga eltir Sadio Mane, leikmann Liverpool.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Japhet Tanganga hefur framlengt samning sinn við Tottenham til 2025.

Hinn 21 árs gamli Tanganga kom upp úr akademíu Tottenham og spilaði sinn fyrsta keppnisleik með aðalliðinu í tapi í vítaspyrnukeppni gegn Colchester í deildabikarnum á síðasta ári.

Eftir að Jose Mourinho tók við, þá fékk eldskírn sína í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni.

Hann spilaði í heildina 11 keppnisleiki með aðalliði Tottenham á tímabilinu sem kláraðist um liðna helgi.

Jan Vertonghen kvaddi Tottenham í gær.
Athugasemdir
banner
banner