Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. júlí 2021 21:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Patrik horfði á Andreas Pereira skora algjörlega magnað mark
Mynd: Getty Images
Manchester United gerði jafntefli við Brentford í æfingaleik á Old Trafford í kvöld.

Brentford eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni. Man Utd var ekki með sitt sterkasta byrjunarlið í kvöld - langt því frá. Hjá Brentford sat markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson allan tímann á bekknum.

Hinn sænski Anthony Elanga kom Man Utd yfir eftir undirbúning frá Aaron Wan-Bissaka. Shandon Baptiste jafnaði fyrir gestina um miðbik fyrri hálfleiks.

Andreas Pereira skoraði algjörlega magnað mark í seinni hálfleiknum áður en Bryan Mbeumo jafnaði metin fyrir Brentford.

Myndband af mögnuðu marki Pereira má sjá hér að neðan. Ekki annað hægt en að klappa fyrir þessu.

Byrjunarlið Man Utd: Heaton, Wan-Bissaka, Tuanzebe, Mengi, Williams, Matic, Mata, Pereira, Lingard, Greenwood, Elanga.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner