Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 28. september 2019 17:00
Kristófer Jónsson
Arnór Sveinn: Höldum áfram að bæta okkur
Arnór Sveinn átti gríðarlega gott tímabil.
Arnór Sveinn átti gríðarlega gott tímabil.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson, leikmaður KR, var að vonum sáttur eftir 2-1 sigur gegn Breiðablik í lokaumferð Pepsi Max-deildar karla í dag. KR-ingar slógu þar nýtt met þar sem að þeir enda með 14 stiga forskot á toppnum.

„Mér fannst þetta ágætis leikur. Við vorum þéttir og vinnusamir í leik sem að var kannski ekki eins mikið undir eins og oft áður." sagði Arnór Sveinn eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  2 KR

Eins og fram kom áðan sló KR nýtt met en þá jöfnuðu þeir einnig annað met þar sem að þeir enduðu með 52 stig í deildinni.

„Við vissum fyrir leikinn að við gætum jafnað stigametið og unnið deildina með 14 stigum. Við fórum með það inní leikinn og ég er ánægður að við höfum náð báðum þessum metum."

Arnór Sveinn hefur verið frábær fyrir KR í sumar og var til að mynda valinn í lið ársins hér á Fótbolta.net. Arnór hefur spilað bakvörð undanfarinn ár en eignaði sér miðvarðastöðuna í sumar ásamt hinum unga Finn Tómasi Pálmasyni.

„Ég segi alltaf að ég sé að spila mitt fyrsta tímabil í efstu deild þar sem ég hef ekki verið miðvörður áður. Það var gaman að geta gert það með Finn Tómasi og við mynduðum mjög gott og skemmtilegt teymi. Þannig að við ætlum bara að halda áfram að læra og bæta okkur." sagði Arnór Sveinn að lokum.

Nánar er rætt við Arnór Svein í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner