Kantmaðurinn ungi Carles Perez er búinn að framlengja samning sinn við Barcelona þar til út júní 2022.
Perez er 21 árs og hefur verið mikilvægur hlekkur í B-liði Börsunga undanfarin ár og fékk tækifæri með aðalliðinu í haust vegna fjarveru leikmanna á borð við Lionel Messi, Ousmane Dembele og Luis Suarez.
Perez hefur þótt standa sig þokkalega vel og er kominn með eitt mark í fimm deildarleikjum.
Perez á átján leiki að baki fyrir yngri landslið Spánar, þó aðeins einn fyrir U21 liðið.
Athugasemdir