Virgil van Dijk var maður leiksins er Liverpool lagði Sheffield United á útivelli, með einu marki gegn engu.
Georginio Wijnaldum gerði eina mark leiksins í síðari hálfleik. Dean Henderson í marki Sheffield virtist vera búinn að verja skotið en hann missti boltann í gegnum klofið á sér og í netið.
Flestir í liði Sheffield þóttu spila vel og fá 7 í einkunn hjá Sky Sports. Aðeins fjórir leikmenn Liverpool fengu svo góða einkunn, Van Dijk fékk 8 fyrir sinn þátt.
Liverpool er með fullt hús stiga eftir sjö umferðir á meðan nýliðar Sheffield eru með átta stig.
Sheffield United: Henderson (5), Basham (7), Egan (7), O’Connell (7), Baldock (7), Lundstram (7), Norwood (7), Fleck (7), Stevens (7), McBurnie (7), Robinson (6).
Varamenn: Mousset (6), Clarke (5)
Liverpool: Adrian (7), Alexander-Arnold (6), Matip (7), Van Dijk (8), Robertson (7), Fabinho (6), Henderson (6), Wijnaldum (7), Salah (6), Firmino (6), Mane (6).
Varamenn: Origi (5),
Athugasemdir