Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 28. september 2019 13:35
Ívan Guðjón Baldursson
England: Wijnaldum gerði sigurmarkið í Sheffield
Mynd: Getty Images
Sheffield United 0 - 1 Liverpool
0-1 Georginio Wijnaldum ('

Nýliðarnir í Sheffield United vörðust gríðarlega vel og virkuðu hættulegir í sóknaraðgerðum sínum gegn toppliði Liverpool í dag.

Staðan var markalaus fram að 70. mínútu þegar Georginio Wijnaldum kom knettinum í netið. Vörn heimamanna mistókst að hreinsa almennilega frá og lét Wijnaldum vaða með skoti fyrir utan teig.

Dean Henderson í marki Sheffield virtist vera með vald á knettinum en missti hann svo í gegnum klofið á sér og þaðan rúllaði hann í netið.

Heimamenn reyndu að jafna undir lokin en það hafðist ekki og er Liverpool því áfram með fullt hús stiga eftir sjö umferðir. Sheffield er með átta stig.
Athugasemdir
banner
banner