Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 28. september 2019 16:56
Valur Gunnarsson
Ian Jeffs: Það gefur honum eitthvað að vinna gullskóinn
Það kemur í ljós eftir helgi hvort Jeffs (th) verði áfram í þjálfaraliði iBV
Það kemur í ljós eftir helgi hvort Jeffs (th) verði áfram í þjálfaraliði iBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Já og nei. Ég er búinn að nýta tækifærið að þjálfa liðið og haft gaman að því þó að þetta hafi verið þungt og erfitt tímabil. Við kveðjum þessa deild og förum í Inkasso næsta ár. Þetta er búið að vera þungt og erfitt tímabil en ég er búinn að læra helling á þessu og það er búið að vera gaman að taka þátt í þessu þrátt fyrir allt."
Sagði Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, eftir 3-2 tapleik gegn Stjörnunni í dag þegar hann var spurður hvort það væri léttir að tímabilinu væri lokið.

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 -  2 ÍBV

En verður Jeffsy áfram í þjálfaraliði ÍBV á næsta ári?
„Ég veit það ekki, það kemur í ljós eftir helgi."

Þetta var kveðjuleikur Matt Garner fyrir ÍBV
„Matt Garner var að spila sinn síðasta leik. Hann er búinn að vera flottur leikmaður fyrir ÍBV í mörg ár. Það hefði verið gaman fyrir hann að enda á sigurleik en hann getur verið stoltur af ferlinum sínum með ÍBV."

Aðpurður hvort gullskór Gary Martin hafi gefið liðinu eitthvað.
„Það gefur honum eitthvað. Við samgleðjumst Gary með þetta. Þetta er flott hjá honum að skora þessi mörk með ÍBV og þetta er glæsilegt fyrir hans hönd. Við vorum bara að hugsa um leikinn. Við vildum bara fá eitthvað útúr þessu í dag. En ég er ánægður fyrir hans hönd."
Athugasemdir
banner
banner