Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 28. september 2019 17:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói Kalli: Erum með yngsta liðið í efstu deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þeir refsuðu okkur grimmilega," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, eftir 5-1 tap gegn Víkingum í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar í dag.

„Við vorum að tapa stöðunni einn á móti einum alltof oft og þeir refsuðu okkur fyrir það."

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  5 Víkingur R.

Eftir að hafa verið mjög öflugir í byrjun móts þá hafnar ÍA í tíunda sæti deildarinnar með 27 stig.

„Við erum virkilega sáttir með að við erum eiginlega búnir að semja við alla okkar leikmenn. Við ætlum að byggja á sömu stefnu og sama leikmannahóp og er hérna. Það er fullt af ungum leikmönnum að koma upp líka. Það sem við þurfum að laga eru hlutir sem snúa að varnarleiknum og við gerðum það virkilega vel í byrjun tímabils. Við þurfum að laga allan okkar leik í heild sinni."

„Við erum búnir að tryggja sæti okkar í efstu deild og það var allltaf markmiðið. Við erum sáttir með það þó svo að við séum ósáttir við seinni hlutann."

„Við viljum gefa ungum strákum tækifæri í efstu deild. Við erum með yngsta liðið í efstu deild. Við erum stoltir af því. Það var mikið af sveiflum á tímabilinu, en það var líka mikið jákvætt. Við þurfum að draga lærdóm af þessu neikvæða."
Athugasemdir
banner
banner