Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. september 2019 15:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rússland: Ragnar fyrirliði er Rostov burstaði Dinamo Moskvu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslendingalið Rostov vann öruggan sigur gegn Dinamo Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Rostov og var hann með fyrirliðabandið. Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í leikmannahópi Rostov.

Rostov leiddi 2-0 í hálfleik og bætti við þriðja markinu eftir að Dinamo hafði misst mann af velli með sitt annað gula spjald í seinni hálfleiknum. Lokatölur voru 3-0 fyrir Rostov.

Með þessum góða sigri fer Rostov upp að hlið Zenit á toppi deildarinnar. Bæði lið eru með 23 stig, en Zenit á þó leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner