Fotbolti.net
28.09.20 - 18:42
Aksentije Milisic

England: Villa ekki í vandræðum með Fulham

Grealish skorar framhjá Areola.

Grealish skorar framhjá Areola.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Fulham 0 - 3 Aston Villa</b>
0-1 Jack Grealish ('4 )
0-2 Conor Hourihane ('15 )
0-3 Tyrone Mings ('48 )

Fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið en þar mættust Fulham og Aston Villa á Craven Cottage.
Gestirnir byrjuðu leikinn mun betur og fyrirliði þeirra, Jack Grealish, kom þeim yfir strax á fjórðu mínútu. Hann fékk þá flotta sendingu frá John McGinn inn fyrir vörn Fulham og kláraði færið vel á nærstöngina.

Ellefu mínútum síðar var Conor Hourihane á ferðinni. Hann skoraði þá eftir laglegt spil hjá Villa. Grealish fann McGinn sem lagði boltann út á Hourihane sem skaut í fyrsta og skoraði framhjá Areola í markinu. Tvær stoðsendingar hjá McGinn í dag.

Staðan var 2-0 í hálfleik og í byrjun síðari hálfleiks kom þriðja markið. Tyrone Mings skoraði þá eftir aukaspyrnu frá Hourihane. Bobby Reid skoraði fyrir Fulham stuttu síðar en markið var dæmt af eftir að VAR fann brot í aðdraganda marksins.

Meira var ekki skorað í leiknum og góður sigur Villa staðreynd. Fulham er búið að tapa þremur fyrstu leikjum sínum en Aston Villa hefur spilað tvo leiki, unnið báða og enn ekki fengið á sig mark.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.