Fotbolti.net
28.09.22 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Konchesky um markið hjá Dagný: Þvílíkur skalli

Konchesky um markið hjá Dagný: Þvílíkur skalli
Canon

Mynd: West Ham

West Ham tapaði 3-1 gegn Chelsea í fyrsta leiknum í 3. umferð ensku kvennadeildarinnar í kvöld.

Dagný Brynjarsdóttir fyrirliði West Ham skoraði mark liðsins eftir aðeins þriggja mínútna leik.

Paul Konchesky er stjóri liðsins en hann telur að liðið hafi skorað aðeins of snemma.

„Ég held að markið hjá Dagný hafi komið aðeins of snemma í leiknum fyrir okkur en þvílíkur skalli," sagði Konchesky.

"Við héldum að við gætum farið með 1-0 forystu í hálfleik en það átti því miður ekki að gerast. Við héldum að við gætum náð einhverju út úr þessu miðað við hvernig við vorum að spila en það var svekkjandi að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.