Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 28. nóvember 2019 17:30
Fótbolti.net
Æfingaleikur: Keflavík lagði Selfoss
Aron Freyr Róbertsson skoraði fyrir Keflavík í gær.
Aron Freyr Róbertsson skoraði fyrir Keflavík í gær.
Mynd: Hulda Margrét
Keflavík 3 - 2 Selfoss
Mörk Keflavíkur: Dagur Ingi Valsson, Anton Freyr Hauks Guðlaugsson og Aron Freyr Róbertsson
Mörk Selfoss: Arilíus Óskarsson og Benjamin Prah.

Keflavík lagði Selfos 3-2 í æfingaleik sem fór fram í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi.

Aron Freyr Róbertsson skoraði eitt af mörkum Keflavíkur en hann lék með Haukum í sumar. Aron er kantmaður sem lék um tíma í yngri flokkum Keflavíkur en hann var einnig í meistaraflokki félagsins fyrir hluta sumars í fyrra.

Hjá Selfyssingum skoraði Benjamin Prah eitt af mörkunum en hann er að æfa með liðinu þessa dagana. Benjamin er kantmaður frá Gana en hann var á mála hjá ÍBV í sumar.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner