Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fim 28. nóvember 2019 14:39
Magnús Már Einarsson
Ársmiðahafar og haustmiðahafar í forgangi í miðasölu á Rúmeníu leikinn
Frá Laugardalsvelli.
Frá Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland mætir Rúmeníu í undanúrslitum í umspili um sæti á EM á Laugardalsvelli þann 26. mars. KSÍ stefnir á að gefa nánari upplýsingar um miðasölu á leikina í desember.

KSÍ getur þó staðfest nú þegar að ársmiðahafar og haustmiðahafar á leiki Íslands í undankeppni EM verða í forgangi þegar miðasala opnar.

Frétt af heimasíðu KSÍ
Eins og knattspyrnuáhugafólki er kunnugt um mun A landslið karla leika í umspili um sæti í lokakeppni EM 2020. Leikið er dagana 26. mars (undanúrslit) og 31. mars (úrslitaleikur) - takist íslenska liðinu að leggja Rúmeníu í undanúrslitaleiknum bíður úrslitaleikur við annað hvort Búlgaríu eða Ungverjaland.

Þessa dagana vinnur KSÍ að undirbúningi leikjanna og meðal verkefna er undirbúningur miðasölu á heimaleikinn 26. mars. Nánari upplýsingar um miðasöluna verður vonandi hægt að birta í desember, en KSÍ getur þó staðfest nú þegar að ársmiðahafar og haustmiðahafar á leiki Íslands í undankeppni EM verða í forgangi þegar miðasala opnar.

Miðasölunni verður skipt í þrjú þrep. Í fyrsta þrepi miðasölu verður ársmiðahöfum* boðið að kaupa miða, í öðru þrepi bætast haustmiðahafar** og í þriðja þrepi verður opnað fyrir almenna sölu.

*Ársmiðahafar keyptu kort sem gilti á alla heimaleiki Íslands í undankeppninni (5 leikir).

**Haustmiðahafar keyptu miða á alla heimaleiki Íslands í haustpakka (3 leikir).
Athugasemdir
banner
banner