Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 28. nóvember 2019 09:00
Aksentije Milisic
Mike Dean dæmir nágrannaslaginn í Liverpool borg - Stuðningsmenn hafa kvartað
Mynd: Getty Images
Mike Dean hefur verið settur á leik Liverpool og Everton þann 4.desember næstkomandi. Einhverjir stuðningsmenn Liverpool og Everton hafa kvartað yfir þessu vali en enska knattspyrnusambandið hefur útskýrt val sitt.

Stuðningsmenn liðanna eru ekki sáttir með valið vegna stuðnings Dean við liðið Tranmere Rovers sem er staðsett í Merseyside. Enska knattspyrnusambandið hefur sagt að tengingar Dean við Tranmere séu „ekkert mál" og að sambandið ætli ekki að breyta um dómara.

Meðlimur í sambandinu sagði við ECHO að dómarar séu valdir eftir frammistöðu þeirra, reynslu og trú á að þeir séu réttu mennirnir í verkefnin hverju sinni.

Leikur Liverpool og Everton verður á miðvikudaginn í næstu viku kl. 20:15 á Anfield.
Athugasemdir
banner
banner
banner