Ben Davies, vinstri bakvörður Tottenham, verður frá í nokkrar vikur eftir að hann meiddist á ökkla gegn West Ham um síðustu helgi.
Davies var í byrjunarliði í fyrsta leik Tottenham undir stjórn Jose Mourinho en hann meiddist í síðari hálfleik.
Davies var í byrjunarliði í fyrsta leik Tottenham undir stjórn Jose Mourinho en hann meiddist í síðari hálfleik.
Hinn 26 ára gamli Davies var á hækjum í stúkunni þegar hann fylgdist með leik Tottenham og Olympiakos í fyrrakvöld.
„,Þetta lítur ekki vel út. Þetta verður einhver tími," sagði Davies við fjölmiðla eftir leik.
Tottenham ætlar að skoða stöðuna hjá Davies á næstunni áður en ákveðið verður hvort hann þurfi að fara í aðgerð. Í öllu falli er ljóst að hann verður ekki með Tottenham í þéttu leikjaprógrami næstu vikurnar.
Athugasemdir