Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 28. nóvember 2020 14:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalía: Birkir kom inn á, fékk gult og annað gult á fjórum mínútum
Mynd: Getty Images
Brescia 1 - 2 Frosinone

Frosinone vann 1-2 útisigur á Brescia í ítölsku B-deildinni í dag. Birkir Bjarnason var meðal varamanna hjá Brescia og kom inn á í öðrum leiknum í röð.

Birkir, sem hafði verið í kuldanum hjá Brescia, kom inn á völlinn á 63. mínútu í stöðunni 1-1. Mínútu síðar fékk hann gult spjald og á 67. mínútu fékk hann sitt annað gula spjald og þar með rautt, stutt gaman.

Sigurmark Frosinone kom á 84. mínútu. Brescia er með níu stig eftir átta umferðir.

Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í leikmannahópi Brescia vegna meiðsla.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner