Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 28. nóvember 2022 14:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Brasilíu og Sviss: Tveir meiddir sem detta út
Fred byrjar.
Fred byrjar.
Mynd: Getty Images
Þá styttist í þriðja leik dagsins á heimsmeistaramótinu í Katar þar sem Brasilía og Sviss munu eigast við.

Bæði þessi lið byrjuðu á sigri í fyrstu umferð; Brasilía gegn Serbíu og Sviss gegn Kamerún.

Brasilía varð fyrir áfalli í fyrsta leik þar sem þeirra helsta stórstjarna, Neymar, fór meiddur af velli. Hægri bakvörðurinn Danilo fór einnig meiddur af velli og kemur ekki meira við sögu í riðlakeppninni.

Eder Militao og Fred koma inn hjá brasilíska liðinu fyrir þá sem meiddir eru.

Það er stór breyting hjá Sviss þar sem Xherdan Shaqiri byrjar ekki. Fabian Rieder, leikmaður Young Boys, kemur inn fyrir hann. Shaqiri byrjar á bekknum sem er athyglisvert; hann hlýtur að vera að glíma við meiðsli.

Byrjunarlið Brasilíu: Alisson; Militao, Marquinhos, Silva, Sandro; Casemiro, Fred, Paqueta; Raphinha, Vinicius, Richarlison.

Byrjunarlið Sviss: Sommer; Widmer, Akanji, Elvedi, Rodriguez; Freuler, Xhaka; Vargas, Sow, Rieder; Embolo.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner