Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 28. nóvember 2022 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Júlli Magg spáir í Suður-Kórea - Gana
Júlíus Magnússon, fyrirliði Víkinga.
Júlíus Magnússon, fyrirliði Víkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Annar leikur dagsins á heimsmeistaramótinu í Katar er leikur Suður-Kóreu og Gana.

Þessi leikur er á dagskrá klukkan 13:00 en það er mikið undir í þessum leik þar sem Suður-Kórea er með eitt stig og Gana er án stiga. Bæði lið þurfa á þremur stigum að halda í dag ef þau ætla sér að fara áfram.

Júlíus Magnússon, fyrirliði bikarmeistara Víkings, spáir í þennan áhugaverða leik.

Suður-Kórea 2 - 1 Gana
Suður-Kórea mun vinna þennan leik. Þeir skilja Gana eftir og fara með Portúgal í 16-liða úrslit.


Athugasemdir
banner
banner