Fotbolti.net
28.11.22 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Pereira óskiljanlega meiddur - Bernardo tileinkar honum sigurinn fyrirfram

Pereira óskiljanlega meiddur - Bernardo tileinkar honum sigurinn fyrirfram
Canon

Mynd: EPA

Varnartengiliðurinn Danilo Pereira, sem er einnig öflugur miðvörður, spilaði í hjarta varnarinnar í 3-2 sigri Portúgal gegn Gana í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins.

Hann rifbeinsbrotnaði á léttri æfingu Portúgal eftir sigurinn og verður því ekki með í næstu leikjum liðsins. Enginn í þjálfarateyminu skilur hvernig Pereira fór að því að brjóta sig og leikmaðurinn hefur ekki hugmynd um það sjálfur.

Búist er við að Pereira geti tekið þátt í 16- eða 8-liða úrslitunum, komist Portúgalir áfram, þar sem rifbeinsbrotið virðist ekki vera alvarlegt.

Portúgal mætir Úrúgvæ í stórleik í kvöld og er Bernardo Silva, ein af stórstjörnum portúgalska liðsins, búinn að tileinka Pereira sigurinn fyrir upphafsflaut leiksins.

„Við viljum tileinka Danilo þennan sigur því hann er stórkostlegur bæði sem leikmaður og manneskja. Þess vegna viljum við vinna þennan leik fyrir hann," sagði Sivla.

Hinn 39 ára gamli Pepe mun byrja í vörninni í stað Pereira gegn Úrúgvæ. Þar mætir hann unglömbunum Luis Suarez og Edinson Cavani, sem eru ekki nema 35 ára.

Pepe, sem er leikmaður Porto, leikur sinn 130. landsleik fyrir Portúgal í kvöld.

Pereira óskiljanlega meiddur - Bernardo tileinkar honum sigurinn fyrirfram
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.