Fotbolti.net
28.11.23 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Rúnar Alex spilaði í tapi - Lærisveinar Carrick með öruggan sigur

Championship: Rúnar Alex spilaði í tapi - Lærisveinar Carrick með öruggan sigur
Canon

Mynd: Cardiff

Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson leikmaður Cardiff á láni frá Arsenal var í rammanum þegar Cardiff fékk West Brom í heimsókn í Championship deildinni í kvöld.

Cardiff mistókst að koma sér upp í umspilssæti þar sem Jeremy Sarmiento skoraði eina mark leiksins fyrir West Brom snemma í síðari hálfleik.

Hann átti skot utan af kannti sem fór alla leið í fjærhornið.

Middlesbrough, undir stjórn Michael Carrick, jafnaði Cardiff að stigum með öruggum 4-0 sigri á Preston. Liðið var 3-0 yfir í hálfleik þar sem Isaiah Jones skoraði tvö mörk.

Hull fór upp í 6. og síðasta sætið sem gefur sæti í umspilinu með öruggum sigri á Rotherham sem er í fallbaráttu.

Watford vann þá magnaðan endurkomusigur á Norwich 3-2 þar sem Watford lenti 2-0 undir eftir rúmlega tíu mínútna leik,

Cardiff City 0 - 1 West Brom
0-1 Jeremy Sarmiento ('50 )

Coventry 1 - 0 Plymouth
1-0 Haji Wright ('75 )

Hull City 4 - 1 Rotherham
1-0 Tyler Morton ('5 )
2-0 Jaden Philogene ('9 )
3-0 Scott Twine ('20 )
4-0 Jaden Philogene ('48 )
4-1 Grant Hall ('59 )

Middlesbrough 4 - 0 Preston NE
1-0 Isaiah Jones ('16 )
2-0 Rav van den Berg ('26 )
3-0 Isaiah Jones ('37 )
4-0 Alex Bangura ('90 )

QPR 4 - 2 Stoke City
1-0 Lyndon Dykes ('11 , víti)
1-1 Ryan Mmaee ('45 )
1-2 Wouter Burger ('59 )
2-2 Lyndon Dykes ('79 )
3-2 Ben Pearson ('89 , sjálfsmark)
4-2 Chris Willock ('90 )
Rautt spjald: Enda Stevens, Stoke City ('53)

Watford 3 - 2 Norwich
0-1 Danny Batth ('3 )
0-2 Ui-jo Hwang ('12 )
1-2 Ismael Kone ('30 )
2-2 Mileta Rajovic ('33 )
3-2 Yaser Asprilla ('77 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea11+823
2West Ham11+1822
3Middlesbrough11+622
4Birmingham11+920
5West Brom11+320
6Stoke City11+219
7Southampton11+1117
8Wolves10+317
9QPR11+317
10Blackburn11+115
11Sheffield Utd11+115
12Millwall11015
13Portsmouth10014
14Wrexham11-114
15Bolton11-314
16Bristol City11-314
17Charlton Athletic11-514
18Lincoln City11-1012
19Cardiff City11+111
20Watford11-911
21Norwich11-49
22Burnley11-58
23Derby County11-116
24Preston NE11-154
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.