Fotbolti.net
28.12.22 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leeds einu marki frá meti sem félagið vill ekki slá

Meslier í markinu þarf að eiga frábæra leiki svo Leeds slái ekki félagsmetið.

Meslier í markinu þarf að eiga frábæra leiki svo Leeds slái ekki félagsmetið.

Canon

Mynd: EPA

Leeds hefur fengið á sig 69 mörk á almannaksárinu 2022 og ef liðið fær á sig eitt í viðbót jafnar liðið met sem liðið setti árið 2003 þegar liðið fékk á sig sjötíu mörk.

Leeds á tvo leiki eftir á árinu; fyrst er leikur gegn Manchester City á heimavelli í kvöld og svo á liðið leik gegn Newcastle.
Á tímabilinu hefur liðið fengið á sig 26 mörk í fjórtán leikjum sem þýðir að liðið fékk á sig 43 mörk seinni hluta síðasta tímabils. Í síðustu tveimur leikjum liðsins hefur það samtals fengið á sig sjö mörk.

City er það lið sem hefur skorað mest á þessu tímabili, fjörutíu mök skoruð. Newcastler er fjórða markahæsta liðið með 32 mörk skoruð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.